Kaffi Kvíabekkur er kaffihús rekið af notendum Miðjunnar sem er hæfingarstöð og dagþjónusta fyrir fólk með fötlun. Kaffihúsið er staðsett í Skrúðgarðinum við Reykjaheiðarveg í gömlu fallegu húsi sem heitir Kvíabekkur. Hægt er að fá vöfflur m. súkkulaði, ís, kaffi, safa og gos. Allskonar útileikir eru í boði fyrir börn og fullorðna.
Opnunartíminn fer eftir veðri en reynt er að hafa opið milli 13-15 á öllum blíðviðrisdögum. Sjá nánar á síðunni hér að neðan.